þriðjudagur, september 27, 2005

Þá ætla ég að ganga frá þessum "klukk" leik... svo að maður fái nú einhvern frið :)
Ef ég skil þetta rétt á ég að skrifa einhverjar fimm staðreyndir um mig, og hér koma þær...

1. Ég ét ekki grænmeti og hef ekki gert það lengi (nema grænar baunir)...
2. Ég get ekki sofnað án þess að hafa eitthvað í gangi (video, tónlist eða eitthvað, annars er ég bara vakandi heilu nætunar)...
3. Ég þoli ekki að lesa eitthvað þar sem eru ekki notaðir stórir stafir á eftir punkt...
4. Ég held alltaf að ég sé að vinna í lottóinu þegar ég tek þátt...
5. Í hvert einasta skipti sem ég kem við járn á bíl, þá fæ ég rafstuð (yfirleitt alveg ágætlega öflugt)...

Jæja,
Þetta var ágætlega öflugt og nú klukka ég Óla, Ollu, Gunna.net, Bassa og Jón Pétur... eins gott að þið gerið þetta fyrst að ég kláraði þetta ;)
|

miðvikudagur, september 07, 2005

Þá er fyrsta vikan á Bifröst hálfnuð og ég búinn að vera á djamminu síðan á sunnudaginn þannig að maður er að taka sæmilega á því þessa dagana. Það er nákvæmlega ekkert að gera í skólanum, er í einhverjum djókfyrilestri einn tíma á dag, búið. Annars er allt gott að fre´tta, orðinn tölvunörd daauðans og er að fara á feitasta fyllerí á morgun (hreddaball), þá verð ég byrjaður í ölinu klukkan 12 á hádegi :) Endilega kommentiði svo að ég viti hvort að það sé einhver sem að skoðar þessu síðu ennþá...
|

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Ggggóóóóðððaaannn daginn...

Jæja, ég er ekki alveg dauður úr öllum æðum og ætla að endurvekja þessa bloggsíðu... þetta bara gengur ekki lengur :)

Veit nú samt ekki hvað ég á að skrifa um, ekkert búið að gerast hjá mér í allt sumar nema að vinna, horfa á sjónvarp og spila X-box. Reyndar er skólinn að fara að byrja (5. september er skólasetning) og þá byrjar það á einhverju djöfulsins fylleríi alla vikuna og síðan er bara tekið á því enda er ég byrjaður að undirbúa mig og lesa nokkrar frábærar lögfræðibækur... ég vil sérstaklega mæla með bókinni "Skattur á fyrirtæki" sem er rúmlega 800 bls. skattaskrudda..

Er annars bara í rólegheitunum upp í sveit og vonast eftir því að komast héðan sem fyrst að gera eitthvað annað...

P.s. var að fá mér þetta fína Visa kort þar sem að maður borgar bara inná og getur ekki eytt umfram það sem maður á inná kortinu, helvíti sniðugt, af hverju fékk ég mér ekki svona strax :)
|

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Jæja, búin að vera mikil bloggþurð undanfarið... ég er nú svosem ekki búinn að gera neitt merkilegt undanfarið :)

Það sem hefur gerst undanfarið er að ég hef verið að læra, læra, læra, horfa á sjónvarp, sofa, drekka bjór, éta og fá rosalegar hugmyndir!!!

Ég fór nú reyndar á árshátíð á laugardaginn hjá Bifröst sem var fín, þar var söngvakeppni og matur, síðan var bara partí útum allt á hótelinu... reyndar var ég mjög rólegur og fór snemma heim þar sem að ég var ekki með hótelherbergi en þegar ég var kominn upp á Bifröst (árshátíðin var í Borgarnesi) þá fattaði ég að ég var ekki með lykil ða herberginu mínu. Þetta endaði með því að ég svaf á gólfinu eftir að hafa reynt að brjóta upp hurðina og klifra upp á þak á skólanum og reyna ða brjótast inn til mín... hef nú svosem gert verri hluti...

Annars er maður bara að fara á Akureyri um næstu helgi og keppa í handbolta... verður örugglega brjálað fyllerí á laugardagskvöldið eftir síðasta leikinn. Síðan er sveitaferð næstu helgi, þetta er eiginlega bara endalaust.

Ég er búinn að vera að pæla í því hvað gerist þegar maður verður 21 árs... hvað má maður gera? Taka leigubílapóf og hvað annað?

daaaaadddadarrrarraa > Over and out...........
|

mánudagur, janúar 24, 2005

Helvítis pest... í þriðja skiptið á 2 mánuðum sem ég fæ hán hita, magaverk og ælupest. Mamma heldur að ég sé með botnlangabólgu, en ég nenni ekki að fá svoleiðis. En ég er byrjaður að geta hreyft mig aðeins, en ég var gjörsamlega frá í dag og vonandi jafna ég mig einhvern tímann á morgun... ætla ekki að missa af of mörgum tímum.

Helgin var fín, matarboð á föstudaginn og afmæli og matur hjá Bassa og Ella á Prikinu á laugardaginn... ég er bráðum að fara að vinna í linkunum, ekki vera móðguð ef að þið eruð ekki þar inni, bar búinn að vera latur :)

Jæja, endilega látið heyra í ykkur í commentunum... sé ekki fram á mikið fjör í veikindunum.

|

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Nú hefur yfirlýsingagleði mín komið mér í koll enn einu sinnni... það segir mér svosem ekki annað en að maður lærir ekki af mistökum sínum. Svo virðist sem að einhver óprúttinn aðili hafi rifjað upp eldri yfirlýsingu mína frá því í septembermánuði um viss verðlaun ef að bloggleysis yrði vart hér á síðunni (gruna vissan Ameríkubúa um að draga þetta upp á yfirborðið). En þar sem ég er þegar búinn að finna lausn á þessu sem að hentar mér einstaklega vel og hefur reynst karlmönnum góð í gegnum tíðina, "different area code" reglan sem verður að gilda hérna...

Annars vil ég hér með draga fyrri yfirlýsingu mína um greiðslur vegna bloggleysis til baka.

Homer Simpson:
"Don't eat me. I have a wife and kids. Eat them."

|

mánudagur, janúar 10, 2005

Ég fór inn á bloggið mitt í dag og tók eftir því að það er akkúrat mánuður síðan ég bloggaði síðast og ákvað að halda upp á það með því að setja inn eina færslu svo að ég geti nú sagt að ég bloggi að minnsta kosti á mánaðarfresti. Það er nú ekki mikið búið að gerast á þessum mánuði... jólin, áramótin (ákvað að strengja engin áramótaheit), vinna og veikindi.

Áramótin voru fremur misheppnuð hjá mér, þar sem að ég varð veikur klukkan 1 um nóttina og ældi fram á morgun, með hita og vesen... síðan fór ég bara upp í sveit og var veikur þar í nokkra daga. En síðan fer að styttast í skólann en hann byrjar á miðvikudaginn með einhverju bulli, einhver stjórnunarleikur fyrstu vikuna sem þýðir bara fyllerí á mið, fim og fös.

Ég var nú reyndar búinn að gleyma því, en ég er búinn að fá herbergi upp á vist á Bifröst, þannig að nú þarf ég ekki að keyra langar vegalengdir á hverjum degi heldur að skella mér í inniskóna 5 mín í 8 og mæta í tíma... frekar ljúft

Ætli maður reyni ekki að vera duglegri að blogga núna, reyna að halda þessu innan mánaðar á milli færsla :)

Adios amigos....

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?